ég vaknaði í morgun
og skýin voru grá
ég vild´ekki frammúr
mín hugsun var blá
þá mundi ég það
sem þú mynntir mig á
Vertu alltaf glöð sál sem hreint hjarta ber
kynntu þig með nafni og sjáðu hvernig fer
vandaðu mál þitt sem ávallt skýrt er
virðingu fær sá sem að ávinnur sér
ég vil þér þakka
að gef´ mér nýjan dag
ég geng með reistan hnakka
allt komið er í lag
ég tekst á við við allt
sem ég þorð´ei fyrr
þess vegna er ég glöð og ég hreint hjarta ber
flestir þekkja mitt nafn og víkja fyrir mér
þú hefur gefið mér sýn
og framtíðin er mín
Vertu alltaf glöð sál sem hreint hjarta ber
kynntu þig með nafni og sjáðu hvernig fer
vandaðu mál þitt sem ávallt skýrt er
virðingu fær sá sem að ávinnur sér
virðingu fær sá sem að ávinnur sér
virðingu fær sá sem að ávinnur sér