Skip to main content

Á Íslandi


 það var eitt sinn maður 

sem að lifði og dó 

hann bjó á íslandi 

þar sem hann dó 

ungur hafði hann drauma 

eitthvað sem í honum bjó 

en á íslandi 

draumurinn dó 

það var eitt sinn kona 

sem að lifði og dó 

hún bjó á Íslandi 

þar sem hún dó 

ung þá hafði hún drauma 

eitthvað sem í henni bjó 

en á Íslandi 

draumurinn dó 

en þau áttu gott líf 

en þau vissu ei um það 

að þau bjuggu í paradís 

og þau sögðu hvað? 

í óspilltri náttúru 

við fuglanna söng 

og fiskurinn í vatninu 

sumarkvöldin löng 

það var eitt sinn strákur 

sem í sveitinni bjó 

hann bjó á íslandi 

í frið og ró 

átti ósk um betra líf 

og burtu hann fór 

hann fór frá Íslandi 

og hann varð stór 

það var eitt sinn stúlka 

sem í sveitinni bjó 

hún bjó á íslandi 

í frið og ró 

hún átti ósk um betra líf 

og burtu hún fór 

hún fór frá Íslandi 

og hún varð stór 

og þau áttu gott líf 

og þau vissu ei um það 

að þau fóru frá paradís 

og þau sögðu hvað? 

frá óspilltri náttúru 

þau áttu minningar 

það eina sem þau vildu 

var að vera aftur þar 

þessi saga kennir mér 

að efast ei um það 

að á Íslandi 

ég á minn stað